Sla over naar inhoud
TailHarbor
← Terug naar resultaten
Beschikbaar

Adopt Krummi

Kruisbried · Vrouwelijk

Krummi er sirka 4-5 ára svartur geldur fress. Yndislegur í alla staði, getur verið uppátækjasamur. Hefur búið með 2 öðrum kisum og hundi sem hefur ekki alveg gengið uppá sitt besta. Þetta er erfið ákvörðun. En við höfum reynt lengi að láta þetta virka en held hann myndi una sér best sem eina dýrið á heimilinu. Hann er innikisi en hefur rosalegan áhuga á útiveruna og myndi örugglega líða best að geta verið útikisi. Því miður höfum við ekki tök á að gefa honum allt sem hann á skilið. Væri óskandi að hann færi á sveitabæ og fengi alla þá öruggu útiveru sem hann vill og helst eina dýrið á heimilinu. Hann hefur átt það til að ráðast á hinar kisurnar okkar líklegast útaf goggunarröðinni eða jafnvel leiðist. Hann er algjör kúrukisi og elskar að láta klappa sér allstaðar. Hefur aldrei sýnt árásargirni gegn mannfólki og er mjög mikil félagsvera fyrir mannfólk. Hann er á sérstöku fóðri afþví hann hefur fengið þvagkristala sem hættu eftir fóðurskipti. er á royal canin urinary care fóðri. Það er einnig búið að vera vandamál með að hann verður gribba ef hann fær ekki mat þegar hann vill og frekar erfið aðstaða að vera með aðrar kisur sem eru ekki á sama fóðri og hann og stela frá honum, og hann frá þeim. Höfum gefið þeim 2x á dag og hann á erfitt með að sætta sig við það að fá ekki mat á sínum eigin tíma þannig hann hefur átt það til að opna skúffur og ruslaskápa til að redda sér mat sem er ekki alveg það besta fyrir hann. Hann hefði þurft að hafa aðgang að mat alltaf. Hann er yndislegur köttur og okkur þykir ofboðslega vænt um hann. Höfum reynt að láta þetta virka með hinum dýrunum okkar í 2-3 ár en finnst við bara ekki getað gefið honum allt sem hann þarf og á skilið. Hann er ekki endilega erfiður köttur, en aðstæðurnar hérna gera hann því miður að því.

Grootte
Leeftijd
Locatie
🇮🇸IJsland
Asiel
Dýrahjálp Íslands
Gratis account aanmaken om te contacten →

Gratis account — 10 contacten inbegrepen

Onder beheer van Dýrahjálp Íslands · IJslandKruisbried

Gelist 4 dagen geleden

Je zou ook kunnen leuk vinden