Adoptar a Dimma
Mestizo · Hembra · Adulto · 4 años
Traducción disponible próximamente.
Vegna breyttra aðstæðna að þà þarf ég því miður að finna nýtt heimili fyrir elsku Dimmu mína.Dimma er rétt um 5 ára, fædd 10 des 2021.Ég fæ hana í hendurnar 4 feb 2022 og er hún búin að fara í ófrjósemisaðgerð og er örmerkt. Hún er afar sérstakur köttur og hefur alla tíð verið mjög kvekkt síðan ég fékk hana í hendurnar.Hún hefur átt erfitt með annað fólk og kvæsir rosa á aðra nema þann aðila sem hún treystir 100%.Ég myndi ekki treysta henni inn á annað heimili þar sem annar köttur er á eða hundur.Ég veit ekki hvernig hún væri í kringum börn þar sem það hefur ekki komið upp sú staða þar sem reynir á það.Hún hefur alla tíð verið innikisa en þegar ég bjó í foreldrahúsum að þá fékk hún sem kettlingur að fara út í garð í bandi og svo þegar hún varð eldri að þá fékk hún að fara út í garð án bands en fór aldrei úr garðinum þar sem að hún er held ég lofthrædd og lét sig þar af leiðandi aldrei flakka upp á grindverkið. Nú hefur hún búið með mér í að verða tvö ár á efstu hæð í blokk. Ég er ekki viss hvort það væri hægt að treysta því að leyfa henni að verða útiköttur þar sem hún verður auðveldlega hrædd og á ekki samleið með öðrum köttum. Hún er rosa góð og getur verið kelin við þá aðila sem hún treystir fullkomlega en það gæti tekið svolítinn tíma að vinna inn traust hjá henni. Ég veit ekki hvort eitthvað hafi komið fyrir hana þegar hún var lítil áður en ég fékk hana sem hefur gert hana svona kvekkta. Mér langar rosa mikið að hún komist á annað ástríkt heimili sem er tilbúið að gefa henni hlýju, tíma og traust og að hún finni sína innri ró
Publicado hoy




